fbpx
Miðvikudagur 19.nóvember 2025
Eyjan

Logi hjólar í Sjálfstæðisflokkinn: „Fólkið í landinu þolir ekki meiri misskiptingu“

Ari Brynjólfsson
Fimmtudaginn 26. október 2017 13:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar. Mynd/Sigtryggur Ari

Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar segir að loforð Sjálfstæðisflokksins  um að lækka skatta muni hagnast best þeim tekjuhæstu, vill hann einnig fá að vita hvernig Sjálfstæðisflokkurinn hyggist lækka skatta án þess að skera niður þjónustu ríkisins. Samfylkingin hefur verið gagnrýnd fyrir að vilja hækka skatta. Logi segir á Fésbók að Samfylkingin vilji snúa við niðurskurði í þjónustu spítala, styrkja skólana, bæta kjör 6.000 barna sem líða skort og laga kjör eldri borgara, öryrkja og þeirra sem eru á lægstu laununum:

Þeir flokkar sem talar hæst um stöðugleika verða að líta sér nær. Sjálfstæðisflokkurinn lofar nú ófjármögnuðum skattalækkunum. Lækka á neðra þrep tekjuskattsins um 2%. Það kostar 26 milljarða,

segir Logi, spyr hann tveggja spurninga í þessu sambandi:

Hvaða þjónustu á að skera niður til að fjármagna tekjutapið? Sjúkrahús, heilsugæslu, skóla, vegi?

Finnst ykkur sanngjarnt að fólk á lágmarkslaunum, 280.000 kr., fái þrisvar sinnum minna en tekjuhæsta fólk landsins þ.e. þau 20% landsmanna sem eru með 835.000 kr. eða meira í laun á mánuð?

Logi segir að þörf sé á vinstristjórn:

Ég er ekki í vafa um hvað mér finnst. Almannaþjónustan þolir ekki meiri niðurskurð. Fólkið í landinu þolir ekki meiri misskiptingu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Jón Guðni Ómarsson: Gjaldmiðillinn stórt atriði sem stendur í vegi fyrir lægri langtímavöxtum – tvær hliðar á þeim pening

Jón Guðni Ómarsson: Gjaldmiðillinn stórt atriði sem stendur í vegi fyrir lægri langtímavöxtum – tvær hliðar á þeim pening
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Sjálfstæðisflokkurinn og Jón Þorláksson

Óttar Guðmundsson skrifar: Sjálfstæðisflokkurinn og Jón Þorláksson
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Jón Guðni Ómarsson: Lánaformið á Íslandi keimlíkt því sem er í Noregi og Svíþjóð

Jón Guðni Ómarsson: Lánaformið á Íslandi keimlíkt því sem er í Noregi og Svíþjóð
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Rósa sat sinn síðasta bæjarráðsfund og lagði fram tillögu sem hún hefur gengið með í 3-4 ár

Rósa sat sinn síðasta bæjarráðsfund og lagði fram tillögu sem hún hefur gengið með í 3-4 ár
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dagur B. Eggertsson: Krónuvextirnir eru þrefaldir á við evruvextina – hrikaleg byrði á íslensk heimili

Dagur B. Eggertsson: Krónuvextirnir eru þrefaldir á við evruvextina – hrikaleg byrði á íslensk heimili
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dagur B. Eggertsson: Þurfum að bregðast við gagnrýni Mannréttindadómstólsins

Dagur B. Eggertsson: Þurfum að bregðast við gagnrýni Mannréttindadómstólsins