fbpx
Föstudagur 12.desember 2025
Eyjan

Vigdís Ósk ráðin til Hringborðs hafs og eldis

Eyjan
Þriðjudaginn 18. nóvember 2025 08:25

Vigdís Häsler, fráfarandi framkvæmdarstjóri Bændasamtakanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vigdís Ósk Häsler Sveinsdóttir lögmaður, hefur verið ráðin sem verkefnastjóri fyrir Hringborð hafs og eldis (IAOF- Icelandic Aquaculture and Ocean Forum). Vigdís mun sinna samkiptum við innlenda og erlenda samstarfsaðila og vinna að þróun nýrra verkefna sem tengjast nýsköpun, sjálfbærni og verðmætasköpun í lagareldi og annarri haftengdri starfsemi. Vigdís er með BA-próf og meistarapróf í lögfræði frá Háskólanum á Akureyri. Árið 2009 hlaut hún málflutningsréttindi. Árið 2013 lauk hún LL.M.-prófi frá University of Sussex í Bretlandi í alþjóðalögum þar sem hún útskrifaðist með láði. Vigdís hefur setið í stjórnum félagasamtaka, fyrirtækja og í kjörstjórn fyrir kosningar til Alþingis, sveitarstjórna og forseta Íslands.

Vigdís starfar jafnframt sem lögmaður hjá Reykvískum lögmönnum. Hún var áður framkvæmdastjóri Bændasamtakanna og starfaði á Alþingi fyrir þingflokk Sjálfstæðisflokksins, þar sem hún kom að undirbúningi að gerð þingmála fyrir þingmenn. Árið 2017 var Vigdís aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Hún starfaði einnig sem lögmaður hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Þá starfaði Vigdís í sjö ár sem lögmaður hjá Lögmönnum Höfðabakka, nú Magna lögmönnum.

„Við erum virkilega ánægð með að fá Vigdísi til liðs við okkur og þekking hennar á atvinnugeiranum er mikilvæg. Vigdís hefur fjölbreytta starfsreynslu að baki sem mun nýtast vel uppbyggingu samtakanna og lagareldis á Íslandi. Vigdís stýrði meðal annars þróunarverkefni í fiskeldi í Fjallabyggð og vann þá náið með samtökunum,“ segir Kjartan Ólafsson, formaður samtakanna.

„Það er margt framundan hjá IAOF enda greinin í örum vexti. Undirbúningur er hafin fyrir fjórðu fjárfestaráðstefnunnar sem samtökin halda í samstarfi við Arion Banka. Það voru gleðitíðindi á liðnu vori þegar tilkynnt var um að fjárfestar hafa varið allt að 650 milljónum evra í verkefni tengd lagareldi hér á landi. Það er því ljóst að markaðurinn hefur mikla trú á þeim verkefnum sem hafin eru hér á landi og greinin er komin til að vera og og því fylgja mikil tækifæri fyrir íslenskt samfélag“, segir Vigdís Ósk Häsler Sveinsdóttir.

Samtökin Hringborð hafs og eldis (IAOF) voru stofnuð árið 2023 af íslenskum fiskeldisfyrirtækjum og er ætlað fyrst og fremst að styðja við vöxt atvinnugreinarinnar á Íslandi. Samtökin eru jafnframt vettvangur alþjóðlegs samstarfs og miðlunar þekkingar um fiskeldi í sjó og á landi, áskoranir tengdar loftlagsbreytingum og nýtingu fiskeldisins, auk annarra þátta sem gera atvinnugreinina að undirstöðuatvinnugrein íslensks efnahagslífs til framtíðar. Samtökin styðja við atvinnuuppbyggingu í greininni og velflest laxeldisfyrirtækin á Íslandi eru aðilar að samtökunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Karl Ágúst Úlfsson: Þýðingin sögð frumtextanum fremri – ekki lítið hrós fyrir tvítugan ungling

Karl Ágúst Úlfsson: Þýðingin sögð frumtextanum fremri – ekki lítið hrós fyrir tvítugan ungling
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Þrálát sóun á almannafé

Sigmundur Ernir skrifar: Þrálát sóun á almannafé
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Nína Richter skrifar: Bringubeinin á Ariönu Grande

Nína Richter skrifar: Bringubeinin á Ariönu Grande
Eyjan
Fyrir 1 viku

Stjórnarandstaðan gagnrýndi fjarveru Guðmundar Inga – Var svo upplýst um að ráðherra liggur á sjúkrahúsi

Stjórnarandstaðan gagnrýndi fjarveru Guðmundar Inga – Var svo upplýst um að ráðherra liggur á sjúkrahúsi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Reiði skólameistarinn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fylgi Miðflokks eykst enn – Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar

Fylgi Miðflokks eykst enn – Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Miðflokkurinn kominn í tæp 20%

Miðflokkurinn kominn í tæp 20%