fbpx
Mánudagur 11.ágúst 2025
Eyjan

Þorgerður Katrín hverfur frá aðlögunarkröfum vegna reglna ESB um lífræna vottun

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 25. janúar 2017 14:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Eyjan/Gunnar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Eyjan/Gunnar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ákveðið að íslensk stjórnvöld hverfi frá aðlögunarkröfum vegna upptöku gildandi reglna ESB um lífræna ræktun. Sömu reglur munu því gilda um framleiðslu, vottun og merkingu lífrænnar framleiðslu á Íslandi og í Evrópu.

Upptaka reglnanna mun auðvelda útflutning lífrænnar íslenskrar framleiðslu til Evrópuríkja, auk þess sem íslenskir neytendur munu njóta góðs af skilvirkara eftirliti, segir í frétt frá ráðuneytinu.

Ísland og Noregur hafa um árabil unnið að upptöku gildandi reglna Evrópusambandsins um lífræna ræktun, sem settar voru í EES-samninginn árið 2007. Aðlögunarkröfur voru settar fram af báðum ríkjum. Kröfur Íslands voru fimm talsins og sneru að merkingum, notkun fiskimjöls við fóðrun jórturdýra, þéttleika í bleikjueldi og stærð hólfa og notkun grindargólfa í fjárhúsum. Hér á landi er í gildi reglugerð um lífræna vottun og framleiðslu frá árinu 2002, sem innleiðir eldri reglur ESB frá árinu 1991. Því hefur útflutningur á lífrænt vottuðum afurðum verið erfiður undanfarin ár og óvíst er hve lengi íslensk vottun verður yfir höfuð viðurkennd innan ESB.

Talið er útséð um að landbúnaðarskrifstofa Evrópusambandsins muni fallast á aðlögunarkröfurnar og féllu Norðmenn frá sínum kröfum síðastliðið sumar. Það er því talið þjóna hagsmunum Íslands að fylgja fordæmi Norðmanna.

Gildandi reglur um lífræna framleiðslu hafa ekki verið uppfærðar í sex ár og má því gera ráð fyrir að upptaka samræmdra reglna komi til með að bæta eftirlit með innflutningi á lífrænt ræktuðum vörum.

Ætla má að reglurnar hafi áhrif á um 30 framleiðendur lífrænna afurða hér á landi. Þær munu hins vegar ekki hafa áhrif á framleiðendur hefðbundinna afurða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Kolla hlustaði á tvo áhyggjufulla Sjálfstæðismenn tala um flokkinn sinn – „Voru þeir að gera nokkuð sem þeim féll greinilega þungt“

Kolla hlustaði á tvo áhyggjufulla Sjálfstæðismenn tala um flokkinn sinn – „Voru þeir að gera nokkuð sem þeim féll greinilega þungt“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslan við breytingar er íhaldinu ofviða

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslan við breytingar er íhaldinu ofviða
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Við erum enn á móti litasjónvarpi

Sigmundur Ernir skrifar: Við erum enn á móti litasjónvarpi
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Æskuást

Óttar Guðmundsson skrifar: Æskuást