fbpx
Mánudagur 11.ágúst 2025
Eyjan

Samfylkingin gagnrýnd harðlega: „Sjálfseyðingarhvötin er líklega takmarkalaus innan flokksins“

Ari Brynjólfsson
Þriðjudaginn 24. janúar 2017 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björn Bjarnason, Logi Einarsson og Páll Vilhjálmsson. Samsett mynd/DV
Björn Bjarnason, Logi Einarsson og Páll Vilhjálmsson. Samsett mynd/DV

Ummæli Loga Einarssonar formanns Samfylkingarinnar um að flokkurinn væri alvarlega að skoða það að leggja fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu  á kom­andi þingi um að fram skuli fara þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um fram­hald við­ræðna Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu, hefur fallið í grýttan jarðveg víða á samfélagsmiðlum í dag.

DV hafði eftir Loga að hugsanlegt sé að tillaga um þjóðaratkvæðagreiðsluna verði til að knýja þingmenn stjórnarflokkanna til að gefa upp afstöðu sína í málinu:

Þetta mál verður samt tekið á dag­skrá og örugg­lega með öðrum hætti en um er rætt í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Þetta er mál sem allir flokkar ættu auð­vitað að vera sam­mála um. Það voru allir flokkar búnir að lofa því meira og minna fyrir kosn­ingar að þjóðin ætti að fá að ráða þessu. Það er lang­heið­ar­leg­ast,

sagði Logi. Hann sagði þó við Viðskiptablaðið í morgun að það sé full djúpt í árina tekið að segja að flokkurinn boði tillögu um ESB-viðræður en það verði skoðað hvernig málið kemst á dagskrá.

Samfylkingin hefur komið verst út úr ESB-málinu

Páll Vilhjálmsson blaðamaður og kennari segir á vefsíðu sinni að Samfylkingin sé með þessu að svíkja bakland sitt á landsbyggðinni þar sem andstaðan við aðild Íslands að ESB sé sterkust:

Eins og alþjóð veit er Samfylkingin giska snjöll að svíkja umbjóðendur sína. Síðustu tíðindi segja okkur að flokkurinn hefur engu gleymt og ekkert lært,

sagði Páll. Ómar Ragnarsson fjölmiðlamaður segir hins vegar í athugasemd að kjósendur, líka á landsbyggðinni, hafi vitað fullvel með hverju þeir hafi verið að greiða atkvæði með í síðustu kosningum.

Björn Bjarnason þáttastjórnandi og fyrrverandi þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins segir í vefdagbók sinni að slík tillaga sé einmitt í anda Samfylkingarinnar:

Samfylkingin hefur allt frá upphafi rekið ESB-málið öðrum þræði til að skapa vandræði innan annarra stjórnmálaflokka vegna þess. Að flytja tillögu í þessa veru nú yrði einmitt gert í þeim anda,

segir Björn:

Þríeykið í Samfylkingunni ætti að minnast þess að flokkur þeirra hefur farið verst vegna ESB-málsins. Sjálfseyðingarhvötin er líklega takmarkalaus innan flokksins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Sjálfstæðisflokk og Framsókn hafa gert andstöðu við atkvæðagreiðslur að sérstöku baráttumáli

Segir Sjálfstæðisflokk og Framsókn hafa gert andstöðu við atkvæðagreiðslur að sérstöku baráttumáli
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kolla hlustaði á tvo áhyggjufulla Sjálfstæðismenn tala um flokkinn sinn – „Voru þeir að gera nokkuð sem þeim féll greinilega þungt“

Kolla hlustaði á tvo áhyggjufulla Sjálfstæðismenn tala um flokkinn sinn – „Voru þeir að gera nokkuð sem þeim féll greinilega þungt“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Foringi herforingjastjórnarinnar hrósaði Trump sem aflétti þá refsiaðgerðum og tollum gagnvart landinu

Foringi herforingjastjórnarinnar hrósaði Trump sem aflétti þá refsiaðgerðum og tollum gagnvart landinu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Er samtal svona hættulegt?

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Er samtal svona hættulegt?
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Björn Jón skrifar: Keisarinn veginn á kamrinum

Björn Jón skrifar: Keisarinn veginn á kamrinum
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Við erum enn á móti litasjónvarpi

Sigmundur Ernir skrifar: Við erum enn á móti litasjónvarpi