fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Eyjan

Birgitta Jónsdóttir hefur verið í beinu sambandi við Chelsea Manning

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 18. janúar 2017 16:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Birgitta Jónsdóttir þingmaður Pírata. Mynd: DV/Sigtryggur Ari
Birgitta Jónsdóttir þingmaður Pírata. Mynd: DV/Sigtryggur Ari

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, hefur verið í beinu sambandi við Chelsea Manning. Þetta sagði hún í viðtali við Frosta Logason á Harmageddon í morgun. En Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, náðaði Manning í gær.

Chelsea hét Bradley áður en hún tilkynnti að hún væri kona í karlmannslíkama eða „transgender“.  Hún var í bandaríska hernum í Írak árið 2010 en þá undir nafninu sem hún notaði áður. Hún stal leynilegum gögnum frá hernum og lét þau í hendur Wikileaks. Samtökin gerðu þúsundir gagna aðgengileg fréttamönnum útum allan heim. Þar kom ýmislegt misjafnt í ljós hjá bandaríska hernum í Írak. Nokkrir Íslendingar, meðal annars þau Kristinn Hrafnsson og Birgitta Jónsdóttir komu að gerð myndbands sem sýndi hvernig bandarískir hermenn réðust á fréttaljósmyndara úr þyrlu og urðu þeim að bana.

Bradley Manning var formlega ákærður í síðustu viku, eftir að hafa verið í haldi í tæplega tvö ár.
Bradley Manning sem síðar átti eftir að verða Chelsea Manning.

Ekki komst upp um Chelsea Manning fyrr en hún sagði Adrian Lamo, frægum hakkara, að það væri hún sem hefði stolið þessum gögnum og komið þeim til Wikileaks. Þá var Chelsea fangelsuð og var dæmd í 35 ára fangelsi árið 2013.

Birgitta hefur líka verið í sambandi við annan uppljóstrara, Edward Snowden, sem er í dag frægari en Chelsea Manning. En Birgitta benti á í viðtalinu á Harmageddon að margir töluðu um að ef ekki hefði verið fyrir uppljóstranir Manning hefði Snowden ekki ljóstrað upp um þá vitneskju sem hann bjó yfir. Birgitta benti líka á að aðstæður þessara tveggja uppljóstrara væru mjög ólíkar því Snowden væri ekki í fangelsi en Manning væri ekki aðeins í fangelsi, heldur herfangelsi.

Börkur Gunnarsson gerði útdráttinn

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Lottópeningarnir skipta sköpum

Willum Þór Þórsson: Lottópeningarnir skipta sköpum
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Að loknum vetrarólympíuleikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Að loknum vetrarólympíuleikum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni