fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Eyjan

Gunnar Smári svarar Inga Frey: „Ég lagði í þessa tilraun allt mitt sparifé“

Ari Brynjólfsson
Föstudaginn 28. apríl 2017 15:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnar Smári Egilsson. Samsett mynd/DV

Gunnar Smári Egilsson sósíalistaleiðtogi svarar Inga Frey Vilhjálmssyni fyrrverandi starfsmanns síns á Fréttatímanum og segist ekki hafa gengið frá blaðinu með mikil verðmæti. Ingi Freyr birti harðorðan pistil á Stundinni í hádeginu í dag þar sem hann vandar Gunnari Smára ekki kveðjurnar og gagnrýnir hann harðlega fyrir að skilja starfsmenn eftir í fjárhagslegri óvissu á sama tíma og hann væri að bjóða þeim á stofnfund stjórnmálaflokks sem á að beita sér fyrir rétti launafólks.

Gunnar Smári segir á Fésbók nú fyrir stundu að hann hafi lengi rætt um rekstrarvanda Fréttatímans, bæði í leiðara blaðsins og í tengslum við söfnunina Frjáls fjölmiðlun fyrr á þessu ári. Þegar þær tilraunir hafi ekki tekist hafi lánadrottnar óskað eftir því að hann léti af störfum:

Þegar á endanum kom í ljós að þessar tilraunir gengu ekki upp var búið að leysa upp vinnustaðinn. Ég gat þá ekki greint starfsfólkinu frá atburðarásinni frá mínu sjónarhóli nema bréfleiðis. Þá höfðu myndast miklir flokkadrættir og margir starfsmanna vildu kenna mér um hvernig fór. Héldu því fram að allt hefði farið betur ef ég hefði brugðist öðru vísi við,

Ingi Freyr Vilhjálmsson. Mynd/DV

segir Gunnar Smári.  Hann segir að vissulega hefði margt getað farið betur og ef hann hefði vitað að tilraunir til að bjarga blaðinu hefðu ekki gengið upp, hefði hann kosið að loka blaðinu fyrr. Varðandi stofnun Sósíalistaflokks Íslands segir Gunnar Smári að Ingi Freyr hafi sjálfur bent á að stjórnmálaþáttaka færi illa saman með ritstjórn blaðs og því var ljóst að hann myndi hætta á Fréttatímanum:

En auðvitað geri ég mér grein fyrir því að þátttaka mín í opinberri umræðu gefur Inga Frey tækifæri til að skrifa svona grein. Hann myndi ólíklega skrifa hana ef ég hefði kosið að draga mig í hlé, flytja upp í sveit og láta af öllum afskiptum að samfélaginu. En það verður bara að hafa það. Ingi Freyr telur rétt að ég þegi í nokkur ár. Ég virði það, en hlýt að hafa rétt til þess að virða þau tilmæli að vettugi.

Gunnar Smári segir gjaldþrot Fréttatímans vera vont mál og komi sér illa fyrir marga, mestan fjárhagslegan skaða beri núverandi og fyrrverandi hluthafar:

Mestan tilfinningalegan skaða af þrotum blaðsins ber starfsfólkið sem þrátt fyrir að hafa lagt sig fram og gefið út frábært blað uppsker engan sigur og þarf að bíða uppgjörs á búinu eftir launagreiðslur, nokkrir vegna vinnu í mars, en aðrir til að fá laun út uppsagnarfrestinn. Því miður á ég ekki pening til að greiða þessi laun. Ég lagði restina af sparifé mínu í fyrirtækið fyrir þar síðustu mánaðamót til að borga launin þá.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorbjörg Sigríður: Ríkisstjórnin klárar stóru málin – fólk kann að meta breytingarnar sem fylgja stjórninni

Þorbjörg Sigríður: Ríkisstjórnin klárar stóru málin – fólk kann að meta breytingarnar sem fylgja stjórninni
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Annaðhvort veit Guðrún Hafsteinsdóttir ekki betur eða hún talar gegn betri vitund

Þorbjörg Sigríður: Annaðhvort veit Guðrún Hafsteinsdóttir ekki betur eða hún talar gegn betri vitund
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“