Verkalýðsfélag Akranes var rétt í þessu að ljúka fundi með stjórnendum HP Granda. Stóð fundurinn yfir í klukkutíma. HB Grandi hafði áformað að láta af botnfiskvinnslu á Akranesi. Þar starfa nú um 270 starfsmenn innan samstæðu HB Granda, þar af starfa 93 við botnfiskvinnsluna. Það var því mikill fjöldi fólks sem átti á hættu á að missa vinnu sína.
Bæjarstjórn Akranesbæjar lýsti því svo yfir vilja til að bæta hafnaraðstöðu við höfnina og biðlaði til HB Granda að fresta áformum sínum og endurskoða þau. Þessi ákvörðun HB Granda hefur vakið deilið og margir gagnrýnt fyrirtækið og sagt að með þessu væri verið að kúga Akranesbæ.
Fundur var svo haldin í dag eftir að Akranesbær greindi frá viljayfirlýsingu sinni. Niðurstaðan var að HB Grandi ætlar að fresta að færa landvinnsluna svo framarlega sem Akraneskaupstaður stendur við sitt.
Vilhjálmur Birgisson verkalýðsforingi á Akranesi segir í samtali við DV að fyrirtækið hafi sýnt mikinn vilja til að vera með vinnsluna áfram á Akranesi. Bæjarstjórn Akranes hafði beðið HB Granda um að fresta áformum sínum um mánuð til að reyna til móts við fyrirtækið.
Vilhjálmur segir:
„Það kom skýrt fram að verði niðurstaðan ekki jákvæð fyrir fyrirtækið þá mun fiskvinnslan loka þann 1. september. Þetta var varnarsigur í raun og veru og býr til örlitla von um að við náum að sannfæra þetta glæsilega fyrirtæki til að vera áfram. Við munum leggja okkur í líma um að svo verði.“
Þá hafa þær raddir verið nokkur háværar á samfélagsmiðlum að með þessu væri fyrirtækið að beita kúgunaraðferðum. Hvað segir Vilhjálmur um slíkam málfutning?
„Nei þeir ætluðu að fara ég er sannfærður um það.“
Þá hefur Grandi sent frá sér tilkynningu en þar kemur fram:
Á fundi trúnaðarmanna HB Granda og forsvarsmanna HB Granda á Akranesi 29. mars 2017, um áform félagsins að loka botnfiskvinnslu félagsins á Akranesi kom fram fullur vilji hjá forsvarsmönnum HB Granda um að ganga til viðræðna við bæjarstjórn Akraness í samræmi við viljayfirlýsingu hennar frá 28. mars 2017. Reynt verður að ljúka þessum viðræðum sem fyrst. Náist ekki jákvæð niðurstaða þá verður að óbreyttu botnfiskvinnslu HB Granda hætt þann 1. september 2017.