fbpx
Miðvikudagur 04.mars 2026
Eyjan

Alþingi kemur saman í dag – Áfram deilt um nefndarskipan

Ari Brynjólfsson
Þriðjudaginn 24. janúar 2017 09:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

AlþingishúsiðAlþingi kemur saman í dag að loknu jólafríi, hefst þingfundur kl. 13:30. Enn hefur ekki náðst sátt í milli stjórnarflokkanna og stjórnarandstöðunnar um hvernig skipt verður í formannsembætti fastanefnda Alþingis. Líkt og fram hefur komið bjóða stjórnarflokkarnir stjórnarandstöðunni tvö formannsembætti af átta. Sjálfstæðisflokkurinn færi þá með formennsku í fimm nefndum og Viðreisn og Björt framtíð skipta með sér formennsku í einni nefnd. Stjórnarandstöðuflokkunum fjórum hefur verið boðin formennska í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og velferðarnefnd.

Lilja Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknarflokksins sagði það lykil að góðri samvinnu milli stjórnar og stjórnarandstöðu að bjóða minnihlutanum formennsku í fleiri fastanefndum, kallaði Birgitta Jónsdóttir þingmaður Pírata tilboð stjórnarflokkanna „klént“.

Fundað var um málið í gær, í hádegisfréttum Bylgjunnar var greint frá því að stjórnarflokkarnir hafi boðið stjórnarandstöðunni formennsku í þriðju nefndinni, umhverfis- og samgöngunefnd. Engin sátt hefur þó náðst um málið.

Birgir Ármannsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir í samtali við Morgunblaðið í dag að stjórnarflokkarnir hafi teygt sig langt til að ná samkomulagi. Þar sem engin sátt náist fyrir þingfund í dag verða fimm stjórnarþingmenn og fjórir stjórnarandstöðuþingmenn í hverri nefnd, sem mun hver fyrir sig kjósa formann.

Ari Brynjólfsson – ari@pressan.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Að lifa í skugga sjaldgæfs sjúkdóms

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Að lifa í skugga sjaldgæfs sjúkdóms
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Lottópeningarnir skipta sköpum

Willum Þór Þórsson: Lottópeningarnir skipta sköpum
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Mesti heiður sem mér hefur hlotnast er að verða heiðursfélagi í Val

Grímur Sæmundsen: Mesti heiður sem mér hefur hlotnast er að verða heiðursfélagi í Val
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna