Maður spyr stundum hvar mörkin liggja í samfélagi okkar – og hvort þau hafi verið að færast mikið til.
Í DV í morgun er viðtal við mann sem kom með sprengju að Stjórnarráðinu í byrjun árs.
En í viðtalinu segist hann hafa ætlað að fara með sprengjuna að heimili forsætirsáðherra.
En svo vissi hann ekki hvar hún ætti heima.
Það er bara sagt frá þessu sisvona – og svo er mynd af manninum þar sem hann mænir upp að Stjórnarráðinu.
Í raun er eitthvað verulega hrollvekjandi við þetta.