Ég ætla að stela þessu frá Elíasi Péturssyni vini mínum:
Fyrir alllöngu var haldinn fundur í Reykjavík, myndin hér að neðan er það sem næst kemst myndrænni útsendingu… í dag voru vitnaleiðslur fyrir landsdómi og ekki ósvipað aðgengi að upplýsingum og á fundinum forðum, nema kannski að nú fá 75 (fyrstur kemur, fyrstur fær) að horfa og hamast við sendingar sundurlausra smáskilaboða yfir pöpulinn sem ekkert má sjá, en fær molana í formi twitter og sms-a…