Það er mikil reiði og æsingur í íslensku samfélagi.
Maður finnur þetta víða – jafnvel bara í umferðinni.
Að sumu leyti er þetta nánast kæfandi.
Atburðurinn sem varð í dag, þegar maður gengur inn á lögfræðistofu, og stingur starfsmann mörgum sinnum er þannig að manni bregður við.
Þetta lítur út eins og morðtilraun – það er samstarfsmaður þess sem varð fyrir árásinni sem kemur honum til varnar.
Íslenskt samfélag færðist eitt skref í áttina að því að verða andstyggilegra.