Skoðanakönnun Gallup um traust á stjórnmálum sýnir að ný stjórnmálaöfl eru í dúndurfæri. Það hefur aldrei verið jafn mikið tækifæri til að ýta gömlu flokkunum út af Alþingi.
Forsætirsráðherrann, Jóhanna Sigurðardóttir, nýtur 18 prósenta trausts. Það er svo lítið að líklega er óhjákvæmilegt fyrir Samfylkinguna að skipta um formann í tæka tíð fyrir kosningar. Sá sem er helst nefndur sem formannsefni þessa dagana er Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra.
Það er líka stór spurning hvort VG verður yfirleitt til í núverandi mynd í næstu kosningum. Nýr formaður sem gæti sameinað Steingríms- og Ögmundararmana virðist ekki vera í sjónmáli.
Það er rétt hjá Styrmi Gunnarssyni að 22 prósenta traust á stjórnarandstöðunni er ekki mikið á tíma svo óvinsællar ríkisstjórnar.
Nýju framboðin þurfa hins vegar að vanda sig. Maður sér varla að svo mikill munur sé á Samstöðu og Dögun að þessi framboð eigi ekki að geta runnið saman í eitt. Björt framtíð virkar nokkuð léttvæg – mannavalið þar er einhæft og það þarf meira til ef flokkurinn ætlar að ná alvöru fylgi á miðju stjórnmálanna.