Þá erum við komin með þrjú framboð sem næsta öruggt má telja að verði með í næstu þingkosningum:
Dögun, Samstöðu og Bjarta framtíð.
Öll þessi framboð virðast vera þess eðlis að þau ættu að geta komið saman framboðslistum alls staðar um landið.
Svo er spurning með Hægri græna.
Dögun leysir Hreyfinguna af hólmi, en við höfum semsagt eftirfarandi framboðsöfl í næstu kosningum:
Samfylkingu, Sjálfstæðisflokk, Framsóknarflokk, Vinstri græn, Dögun, Samstöðu, Bjarta framtíð, kannski Hægri græn.
Það gæti náttúrlega bæst eitthvað við – og svo er spurning með VG – nær sá flokkur að bjóða fram saman í heilu lagi?
Einhvern veginn heldur maður að hljóti að fara um gömlu flokkana – stjórnarflokkarnir horfa fram á mikið fylgistap og það eru varla neinir kosningasigrar í spilunum fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn við þessar aðstæður.