Menn eru að velta fyrir sér Búsáhaldabyltingunni.
Ég skrifaði fyrr í kvöld að líklega hefði stjórn Geirs Haarde verið fallin fyrir hana. Reyndar má segja að hún hafi fengið náðarhöggið kvöldið sem mótmælendur þustu upp í Þjóðleikhúskjallara og umkringdu fund hjá Samfylkingarfélaginu í Reykjavík.
Samfylkingarfólk hefur brugðist illa við því orðalagi að mótmælendurnir hafi tekið yfir fundinn, það segir að rétt sé að mikil óánægja hafi verið innan Samfylkingarinnar og hún hafi brotist fram á fundinum.
Samfylkingin var mjög skelkuð, hún hafði jú setið í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum – í hrunstjórninni – í hátt í tvö ár. Það reið á fyrir foringja Samfylkingarinnar að bjarga sínu pólitíska skinni – Ingibjörg Sólrún var veik og alveg fjarverandi þessa daga.
Að líkindum var farið að þreifa fyrir um myndun ríkisstjórnar Samfylkingar og VG strax um áramótin – nokkuð fyrir Búsáhaldamótmælin. Heimildir eru fyrir því að Össur Skarphéðinsson, Lúðvík Bergvinsson, Ögmundur Jónasson og Steingrímur J. Sigfússon hafi átt fundi á heimili Lúðvíks. Össur var þá iðnaðarráðherra, Lúðvík formaður þingflokksins.
Á þeim tíma höfðu þessir tveir flokkar einungis 27 þingmenn. Þeir þurftu að tryggja sér stuðning til að geta myndað ríkisstjórn. Hann birtist í líki Sigmundar Davíðs sem var einmitt kjörinn formaður Framsóknarflokksins í janúar þetta ár.
Það var svo ákveðið snilldarbragð að gera Jóhönnu Sigurðardóttur að forsætisráðherra, hún var eini þingmaður Samfylkingarinnar sem gat notið trausts í það starf á þeim tíma.
Það er svo sérstakt rannsóknarefni að eftir þetta fékk Sigmundur Davíð svo mikla óbeit á Samfylkingunni að það setur mikinn svip á stjórnmálin.
En það var ólga víðar – hvort sem við tengjum það Búsáhaldabyltingunni eða ekki. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins var haldinn í mars, þá lét Geir Haarde af formennsku í Sjálfstæðisflokknum eftir aðeins þrjú og hálft ár í embætti og Bjarni Benediktsson tók við.
Sjálfstæðismenn hafa tekið upp miklar varnir fyrir Geir, en á þessum tíma voru þeir gjörsamlega búnir að missa trú á honum.