fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
Eyjan

Ekki bylting, ekki skipulagt af stjórnmálaflokkum

Egill Helgason
Sunnudaginn 26. febrúar 2012 20:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er eitt sem kannski ætti að liggja ljóst fyrir núorðið: Búsáhaldabyltingin var ekki bylting.

Ríkistjórn Geirs Haarde féll vegna þess að Samfylkingin vildi ekki eða treysti sér ekki til að starfa í henni lengur. Vendipunkturinn var þegar mótmælendur stormuðu upp í Þjóðleikhús og tóku yfir fund Samfylkingarfélagsins í Reykjavík.

Það spilaði inn í að formaður flokksins, Ingibjörg Sólrún, var veik og hafði ekki lengur stjórn á flokknum.

En stjórnin var búin á því – og heimildir eru um að þreifingar um nýja stjórn hafi verið byrjaðar fyrir búsáhaldamótmælin. Þau brutust út í janúar 2009.

Mótmælin fjöruðu út þegar ný stjórn tók við, stjórn Samfylkingar og Vinstri grænna með hlutleysi Framsóknarflokksins.

Vinstri grænir knúðu á að kosningar yrðu haldnar sem fyrst, þeir vissu að þeir ættu kosningasigur vísan. Kosningarnar voru haldnar í apríl. Margir voru þeirrar skoðunar að rétt hefði verið að halda kosningarnar um haustið, þá hefðu grasrótarhreyfingar náð að skipuleggja sig betur.

Nú hefur ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna setið í þrjú ár, hún hefur ekki reynst sérlega byltingarsinnuð, og það hafa orðið skil milli hennar og stórs hluta þeirra sem tóku þátt í búsáhaldamótmælunum.

Það var heldur aldrei krafa í mótmælunum að Steingrímur og Jóhanna kæmust til valda, miklu frekar einkenndust þau af almennri vantrú á stjórnmálamönnum.

Ragnar Þór Pétursson skrifar ágæta grein um þetta á vefsíðu sína sem nefnist Maurildi.

Ragnar telur upp ýmsa hópa sem tóku þátt í búsáhaldamótmælunum, anarkista, bumbuslagara, unglinga, eldra fólk, áhugafólk um mannlífið, fjölskyldufólk, fatlaða, reiða fólkið, róttæka vinstri menn.

Hann segir eins og rétt er að einungis í síðasta hópnum hafi verið fólk sem hafði einhverja „pólitíska tengingu eða stýringu“. Þessi hópur hafði sig hins vegar mikið í frammi og kann því að hafa verið sérlega áberandi í augum lögreglunnar.

En, semsagt, þetta var ekki bylting, og langfæstir sem voru þarna voru á vegum stjórnmálaflokka.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þröstur Ólafsson: Útgerðin felur gróðann með skúffufélögum í skattaskjólum – ósvífnar hótanir

Þröstur Ólafsson: Útgerðin felur gróðann með skúffufélögum í skattaskjólum – ósvífnar hótanir
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Musk hættur hjá Trump – Töluðu ekki saman undir lokin

Musk hættur hjá Trump – Töluðu ekki saman undir lokin
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Nýr formaður SA í vasa sægreifa – blekkingar Jens Garðars – Lilja Dögg veit ekki að hagvöxturinn í fyrra var í mínus

Orðið á götunni: Nýr formaður SA í vasa sægreifa – blekkingar Jens Garðars – Lilja Dögg veit ekki að hagvöxturinn í fyrra var í mínus
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkar sem eru á móti sjálfum sér

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkar sem eru á móti sjálfum sér
Eyjan
Fyrir 1 viku

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Umræðu lyft á hærra plan

Þorsteinn Pálsson skrifar: Umræðu lyft á hærra plan