Það er sagt að búið sé að banna hinn eitraða Sacha Baron Cohen frá Óskarsverðlaunahátíðinni á sunnudag. Hann leikur stórt hlutverk í kvikmyndinni Hugo sem er tilnefnd til fjölda verðlauna. Menn óttast að Cohen verði með einhver látalæti á hátíðinni – þá væntanlega í tengslum við nýja kvikmynd hans sem nefnist The Dictator. Þegar Cohen sýndi kvikmyndina Borat mætti hann til Cannes á pungbindi.