fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Eyjan

Langvarandi pólitísk blinda

Egill Helgason
Mánudaginn 20. febrúar 2012 20:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rithöfundurinn Apostolos Doxiades skrifar sérlega glögga og hreinskilna grein um vandræðin í Grikklandi í Guardian. Hann bendir á að það sé aðeins fámennur hópur sem kveiki í húsum og hendi eldsprengjum í lögreglu og að þeir sem mæti í mótmælaaðgerðir séu yfirleitt ekki nema lítil hluti flokka eða verkalýðsfélaga sem boða þær. Flestir Grikkir séu að reyna að bjarga sér sem best þeir geta, en þetta sé hins vegar gott sjónvarpsefni.

Hann vitnar í Sókrates og segir að það sem er illt stafi yfirleitt af þekkingarskorti. Grikkir hafi lengi verið slegnir blindu gagnvart því hvað stjórnmálakerfi þeirra er feikilega spillt, hvernig stjórnmálamenn kaupa sér atkvæði með klíkuskap og fjáraustri í gæluverkefni. Stjórnmál í Grikklandi hafi fyrst og fremst byggst á greiðasemi. Flokksfélögum, vinum og stuðningsmönnum var hrúgað í þægileg störf hjá ríkinu. Ríkið blés út eins og enginn væri morgundagurinn – Doxiades segir að enn bóli lítið á fækkun ríkisstarfsmanna.

Á endanum hafi þetta kerfi verið orðið svo dýrt og óhagkvæmt að það hafi hrunið eins og spilaborg – en auðvitað hafi kreppa á alþjóðavettvangi ekki hjálpað. Ástandið hefði þó aldrei orðið svona slæmt ef stjórnmálamenn hefðu ekki grafið undan þjóðfélaginu í langan tíma.

Grikkir hafi látið þetta gott heita – betri skilningur og þekking á stjórnmálum hefði kannski getað afstýrt ógæfunni.

Doxiades að þeir pólitíkusar sem eruy ákafastir að taka við lánum frá Evópusambandinu og AGS vonist til að þetta kerfi geti haldið áfram, en þeir sem setji þjóðarstolt á oddinn og vilji ekki utanaðkomandi aðstoð vonist til að þjóðin lendi í glundroða og eymd sem verði jarðvegur fyrir öfgaöfl.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Er Trump búinn að tapa sér endanlega? – Stórfurðuleg færsla hans um aftöku Biden

Er Trump búinn að tapa sér endanlega? – Stórfurðuleg færsla hans um aftöku Biden
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Prússneskur agi

Björn Jón skrifar: Prússneskur agi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Össur leggur til nýtt formannsefni fyrir Sósíalistaflokkinn í öldurótinu

Össur leggur til nýtt formannsefni fyrir Sósíalistaflokkinn í öldurótinu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Fyrrverandi þingmaður gengur af göflunum – nýr þingmaður gengur fram af fólki

Svarthöfði skrifar: Fyrrverandi þingmaður gengur af göflunum – nýr þingmaður gengur fram af fólki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ráðherra les móðgaðri stjórnarandstöðu pistilinn – „Ykkar eina erindi hér á þessu þingi er sérhagsmunagæsla“

Ráðherra les móðgaðri stjórnarandstöðu pistilinn – „Ykkar eina erindi hér á þessu þingi er sérhagsmunagæsla“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Geðstirður karl hættir í vinnunni

Geðstirður karl hættir í vinnunni