fbpx
Fimmtudagur 05.júní 2025
Eyjan

Hannes: Felulitir

Egill Helgason
Föstudaginn 17. febrúar 2012 08:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hannes Pétursson skáld skrifaði snilldarlega stílaða grein í Fréttablaðið í gær. Greinin ber yfirskriftina Felulitir. Hér er lítið brot úr henni:

„Á Dalvík hafa þeir veðurklúbbinn. Við Álftnesingar gerum okkur aftur á móti til gamans að fylgjast með flaggstönginni á Bessastaðahlaði. Alltaf er jafn spennandi að horfa til hennar, ýmist yfir gömlu Hestamýrina eða Lambhúsatjörn. Fyrstu mánuðina eftir Hrun blakti fáninn þar löngum og löngum, forsetinn lagði ekki í miklar utanferðir af skiljanlegum ástæðum. En svo rættist úr smám saman og aftur gladdi tilbreytingin okkur sem höfum haft fyrir sið að súpa á göngutúrum frískt útiloft hér á Nesinu.

Eftir þetta er einn daginn flaggað, annan daginn er ekki flaggað. Stundum stendur fánastöngin svo lengi nakin að maður spyr sig ósjálfrátt hvort forsetinn sé ekki í raun búsettur erlendis, til að mynda í London, og skjótist aðeins hingað til að sinna embættiserindum eftir stundatöflu, hraði sér því næst burt að nýju þangað sem er skemmtilegra að vera.

Þegar ekki er flaggað ríkisfánanum og há stöngin titrar í gustinum hættir manni til að horfa heim að Bessastöðum eins og þeirrar annexíu sem staðurinn er réttilega, vel húsuð annexía frá Görðum á Álftanesi. En það er segin saga að upp gýs her af ljósmyndurum og míkrófónmönnum hafi forsetinn millilent, allt verður afar sögulegt og tímamótalegt í nokkrar mínútur, jafnvel eitthvað lengur annað kastið, sér í lagi ef forsetinn þarf að leggjast undir kýrhúðina í framhaldi af fjöldaundirskriftum, þenkja, álykta og hringja undan húðinni í fáeinar kennitölur til vonar og vara.

En þegar heimaverkefnin hafa verið af hendi leyst, ríkisfáninn dreginn niður, forsetinn farinn utan, kannski til Sameinuðu arabísku furstadæmanna, kannski til Himalaja í jöklarannsóknir, þá horfum við á spássértúrunum enn að Bessastöðum, festum ekki sízt augun á útidyrum „þjóðarheimilisins“ og minnumst þeirra gjöfulu dýrðardaga þegar hagvanir stórsvindlarar gengu þar út og inn með riddarakrossa og aðrar heiðursviðurkenningar framan á sér öllum, gott ef ekki líka í jakkabakinu eins og öskupoka.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkar sem eru á móti sjálfum sér

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkar sem eru á móti sjálfum sér
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Dauðinn og fíknin

Óttar Guðmundsson skrifar: Dauðinn og fíknin
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Steinunn Ólína: Velkomin til Íslands

Steinunn Ólína: Velkomin til Íslands
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“