Í Kiljunni í kvöld rekjum við þráð út bók Páls Björnssonar sagnfræðings sem nefnist Jón forseti allur. Bókin fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin nú í janúar.
Við förum á Alþingi og í miðbæ Reykjavíkur og sjáum hvernig Jón birtist þar – og táknmyndir af honum. Það má í raun segja að Alþingi sé hálfgert Jónshús en að auki vakir Jón yfir þinghúsinu utan af Austurvelli.
Um það orti Steinn Steinarr frægt kvæði sem við rifjum upp í þættinum, það hefst með svofelldum orðum:
„Jón Sigurðsson, standmynd, sem steypt er í eir…“
Við fjöllum um bóklestur og læsi barna og ungmenna – í þáttinn koma Eva María Jónsdóttir og Andri Snær Magnason sem hafa tekið þátt í átaki sem nefnist Bókaþjóð í ólestri.
Kolbrún og Páll Baldvin fjalla um íslenska þýðingu á Ferðum Gúllívers og Við tilheyrum sama myrkrinu eftir Kristínu Ómarsdóttur.
En Bragi rýnir í gömul handrit og pappíra, þar koma meðal annarra við sögu Jón Óskar skáld, Jón Kristófer kadett og Haraldur Á. Sigurðsson gamanleikari.
Þetta sérdeilis skýra málverk af Jóni Sigurðssyni eftur August Schiött er eina myndin sem hangir upp í þingsalnum á Alþingi, en að auki horfir höggmynd af Jóni inn í salinn úr svokölluðu ráðherraherbergi. Jón vakir yfir þinghúsinu frá Austurvelli, en í húsi Natans & Olsen er stytta af honum sem fáir þekkja.