fbpx
Mánudagur 09.júní 2025
Eyjan

Rammaáætlun er ekki sátt

Egill Helgason
Mánudaginn 19. mars 2012 17:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það virðist ætla að fara eins og mann grunaði að Rammaáætlun, sem búið er að ræða um og vísa til í mörg ár, myndi ekki koma á neinni sátt um virkjanamál.

Það er ekki einu sinni sátt um áætlunina milli stjórnarflokkanna. Innan Samfylkingarinnar er að finna mjög eindregna virkjanasinna og í VG er fólk sem má helst ekki hugsa til þess að neitt verði virkjað.

Þannig að við höfum sömu pólitísku átakalínur og áður. Sumum finnst gengið of langt í áætluninni, öðrum finnst gengið of stutt. Enginn virðist ætla að una þessari sátt sem átti að verða.

Ríkisstjórnin sem nú situr hefur verið treg til að efna til virkjanaframkvæmda – en það er þó ekki eina skýringin á hægagangi í þeim, það hefur einfaldlega ekki verið til fé í landinu til að ráðast í virkjanir eða stóriðjuframkvæmdir.

Þegar ný ríkisstjórn tekur við – til dæmis Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eða Samfylkingar – má búast við að þarna verði breyting á – alveg burtséð frá Rammaáætluninni.

Í dag skerst í odda milli Árna Finnssonar, formanns Náttúruverndarsamtaka Íslands, og Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins. Bjarni hafði talað um öfgamenn í umhverfismálum, Árni segir að þetta beri vott um lítilsvirðingu og vanþekkingu, Bjarni segir að hann sé mikill áhugamaður um náttúru landsins eins og aðrir Sjálfstæðismenn.

Mikið rétt, við erum öll í mismiklum mæli áhugafólk um náttúruna. Sjálfstæðisflokkurinn hefur átt sína náttúruverndarmenn, þeirra þekktastur er líklega Birgir Kjaran. En á tíma Davíðs Oddssonar þrengdust allar vistarverur í flokknum mjög. Önnur sjónarmið en formannsins voru eiginlega ekki liðin. Frægast var þegar Ólafur F. Magnússon var baulaður niður úr ræðustól á landsfundi – hann var þá helsti talsmaður náttúruverndar í flokknum.

Eftir þetta urðu margir náttúruverndarsinnar viðskila við flokkinn – og þeir hafa ekki skilað sér aftur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Margir sem náð hafa hálfs árs aldri hafa komið minna í verk

Margir sem náð hafa hálfs árs aldri hafa komið minna í verk
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þröstur Ólafsson: Útgerðin felur gróðann með skúffufélögum í skattaskjólum – ósvífnar hótanir

Þröstur Ólafsson: Útgerðin felur gróðann með skúffufélögum í skattaskjólum – ósvífnar hótanir
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Myndum við berja hvolpa til bana með lurk eða drekkja hundum?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Myndum við berja hvolpa til bana með lurk eða drekkja hundum?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Nýr formaður SA í vasa sægreifa – blekkingar Jens Garðars – Lilja Dögg veit ekki að hagvöxturinn í fyrra var í mínus

Orðið á götunni: Nýr formaður SA í vasa sægreifa – blekkingar Jens Garðars – Lilja Dögg veit ekki að hagvöxturinn í fyrra var í mínus
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Steinunn Ólína: Velkomin til Íslands

Steinunn Ólína: Velkomin til Íslands
Eyjan
Fyrir 1 viku

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“