Jón Magnússon bendir á nokkur einföld atriði í stuttum pistili sem hann nefnir Sérleiðirnar duga ekki.
Verðbólga á Íslandi mælist nú tæp 7 prósent, verðbólgumarkmið Seðlabankans sem aldrei virðist ætla að nást er 2,5 prósent.
Stýrivextir Seðlabankans eru 4,75 prósent.
Þetta er hæsta verðbólga og vextir í okkar heimshluta – og þetta er í hagkerfi sem er mjög laskað eftir efnahagshrun.
Í Noregi er verðbólga 1 prósent en stýrivextir 1,5 prósent.