Ólafur Ragnar Grímsson hefur boðað til blaðamannafundar í dag.
Þar mun hann væntanlega svara vangaveltum um að hann kunni að fara enn einu sinni í forsetaframboð – og áskorunum þar um.
Ég ætla að spá því að Ólafur tilkynni að hann ætli ekki í framboð.
Þannig skildi ég áramótaræðu hans og sá skilningur hefur ekki breyst.