Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson fornleifafræðingur skýrir frá því að Simon Wiesenthal stofnunin í Los Angeles hafi haft samband við Pál Magnússon og mótmælt því að Passíusálmarnir séu lesnir í útvarp.
Vilhjálmur segir að Passíusálmarnir séu fullir af gyðingahatri:
„Þótt hatrið í Passíusálmunum sé frá því á 17. öld, er það samt sem áður gyðingahatur, og þó þessir sálmar séu nærri dýrkaðir í kirkjum Íslands í dag og árlega þuldir í útvarpi af leikum sem lærðum, guðhræddum sem guðleysingjum, eru þeir enn sem áður svæsið gyðingahatur. Hatrið og orðbragði í sálmunum fer reyndar langt fram yfir það sem t.d. íslenskir nasistar létu frá sér fara á prenti á 20. öld.
Nú er svo komið á Íslandi, að pólitísk rétthugsun, meira en annað, kemur fyrir að menn séu með ónot út í svarta menn, samkynhneigða, múslíma eða aðra minnihluta. En árlega á föstunni er útvarpað lestri sálma sem eru fullir af gyðingahatri. Þeir eru lesnir með helgislepju og margir munu hlusta á þetta. Halda mætti að slepjan væri svo yfirgengileg, að menn hlusti aðeins á þetta með einu eyranu og séu ónæmir fyrir ljótu orðavali um gyðinga. En persónulega tel ég að þetta hatur seytlist inn í undirmeðvitund fólks.“