fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
Eyjan

Skálkaskjól

Egill Helgason
Fimmtudaginn 23. febrúar 2012 19:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Patriotism is the last refuge of the scoundrel,“ sagði Samuel Johnson. Þjóðernishyggja er skálkaskjól.

Þetta á ágætlega við um Vladimir Pútín sem trommar upp í kosningabaráttu í Rússlandi með stóryrði um hið mikla móðurland, hið sigurslæla rússneska kyn og stríðið um Rússland.

Það er reyndar óvíst hver óvinurinn er – líklega hið hugrakka fólk sem þorir að mótmæla hinni spilltu stjórn Pútíns.

Pútín vísar í sigra í Napóleonsstríðunum og í stríðinu mikla gegn Þýskalandi nasismans.

Tolstoj gerði Napóleonsstríðunum ágæt skil og besta skáldverkið um stríðið mikla er Líf og örlög eftir Vassilí Grossman – sem Suslov, hugmyndafræðingur Kommúnistaflokksins, sagði að yrði ekki gefin út næstu 200 árin.

Vandinn við minninguna um það er að Rússar og þjóðir Sovétríkjanna færðu vissulega óskaplegar fórnir. En fólkið var í klóm morðóðs harðstjóra og klíku hans, sem hafði sölsað undir sig hálft Pólland og Eystrasaltsríkin í stríðsbyrjun og lagði svo undir sig hálfa Evrópu af stríðinu loknu – herti þá tök kúgunarinnar aftur. Sigurinn byggði ekki síst á óskaplegum og að sumu leyti tilgangslausum mannfórnum.

Undir Pútín hefur orðið einhvers konar endurreisn minningar Stalíns sem mikils herstjóra – en þetta er hin raunverulega blóði drifna arfleifð og hún er afar tvíbent.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Er Trump búinn að tapa sér endanlega? – Stórfurðuleg færsla hans um aftöku Biden

Er Trump búinn að tapa sér endanlega? – Stórfurðuleg færsla hans um aftöku Biden
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Prússneskur agi

Björn Jón skrifar: Prússneskur agi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Össur leggur til nýtt formannsefni fyrir Sósíalistaflokkinn í öldurótinu

Össur leggur til nýtt formannsefni fyrir Sósíalistaflokkinn í öldurótinu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Fyrrverandi þingmaður gengur af göflunum – nýr þingmaður gengur fram af fólki

Svarthöfði skrifar: Fyrrverandi þingmaður gengur af göflunum – nýr þingmaður gengur fram af fólki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ráðherra les móðgaðri stjórnarandstöðu pistilinn – „Ykkar eina erindi hér á þessu þingi er sérhagsmunagæsla“

Ráðherra les móðgaðri stjórnarandstöðu pistilinn – „Ykkar eina erindi hér á þessu þingi er sérhagsmunagæsla“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Geðstirður karl hættir í vinnunni

Geðstirður karl hættir í vinnunni