fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
Eyjan

Salvör ekki með?

Egill Helgason
Fimmtudaginn 23. febrúar 2012 19:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt þessari frétt á mbl.is gerir Salvör Nordal, formaður Stjórnlagaráðs, alvarlegar athugasemdir við það hvernig Alþingi hefur meðhöndlað stjórnarskrárdrögin sem ráðið lagði fram á síðasta ári.

Og ef marka má fréttina ætlar Salvör ekki að vera með í fundum ráðsins sem eru boðaðir fyrri partinn í mars.

Þingið hefur ekki fjallað efnislega um neitt í drögunum sem komu frá ráðinu, en er samt að senda þau aftur til ráðsins – mbl.is birtir eftirfarandi bréf frá Salvöru til forsætisnefndar Alþingis:

„Til forsætisnefndar Alþingis

Samkvæmt þingsályktun sem samþykkt var á Alþingi í dag er stjórnlagaráð boðað til fjögurra daga vinnufundar í byrjun mars. Eins og fram kom í samtali mínu við formann stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar fyrr í vikunni, get ég því miður ekki mætt til fundarins vegna annarra starfa en ég verð m.a. á fundi erlendis 8. og 9. mars þegar fundurinn er fyrirhugaður.

Ég fagna því að Alþingi vilji gefa stjórnlagaráði tækifæri til að bregðast við tillögum hennar enda sagði í skilabréfi ráðsins að fulltrúar væru reiðubúnir að koma að málum aftur síðar. Ég geri þó alvarlegar athugasemdir við það hversu fyrirvarinn er skammur og hversu óskýrt hlutverk fundarins er, bæði um hvað hann eigi að fjalla og hverju hann eigi að skila. Vert er að geta þess að ekkert samstarf var haft við stjórn stjórnlagaráðs við mótun þingtillögunnar.

Á fundinum er stjórnlagaráði ætlað „að fjalla um spurningar og tillögur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að mögulegum breytingum á frumvarpinu, sem og um aðra þætti í frumvarpinu sem ráðinu þykir þurfa“, eins og það er orðað í meirihlutaáliti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Þær spurningar og tillögur sem hér er vísað til fylgja ekki breytingatillögunni og því er engan veginn hægt að gera sér grein fyrir hversu viðamikið verkefni vinnufundarins verður á þessari stundu, þegar aðeins um tvær vikur eru til stefnu. Þetta gerir skipulag og undirbúning fundarins afar erfitt. Formaður nefndarinnar hefur tjáð mér að spurningar og tillögur muni liggja fyrir á næstu dögum en það er einfaldlega ófært að þær skuli ekki liggja fyrir nú þegar.

Gert er ráð fyrir að vinnufundurinn standi í fjóra daga sem er afskaplega stuttur tími til að ræða flókin og vandasöm álitaefni stjórnskrárinnar ekki síst ef markmiðið er að stjórnlagaráð nái að skila sameiginlegum breytingatillögum eigi síðar en 12. mars, þ.e. strax að vinnufundinum loknum. Mitt mat er því það að fundinn eigi fyrst og fremst að nýta til samræðu milli stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar við þá fulltrúa í stjórnlagaráði sem eiga heimangengt fremur en að kallað sé eftir breytingartillögum frá ráðinu með þessum stutta fyrirvara. Kjósi einhverjir innan stjórnlagaráðs að skila inn breytingatillögum til nefndarinnar að honum loknum geri þeir það í eigin nafni.

Virðingarfyllst,
Salvör Nordal“

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

„Þetta var kannski viðbúið, en ekki eru þetta gleðitíðindi“

„Þetta var kannski viðbúið, en ekki eru þetta gleðitíðindi“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Er Trump búinn að tapa sér endanlega? – Stórfurðuleg færsla hans um aftöku Biden

Er Trump búinn að tapa sér endanlega? – Stórfurðuleg færsla hans um aftöku Biden
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Samkeppnishæfni Íslands er málið

Thomas Möller skrifar: Samkeppnishæfni Íslands er málið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir skrifar: Búvörulagadómur Hæstaréttar

Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir skrifar: Búvörulagadómur Hæstaréttar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigmundur uppskar mikinn hlátur á Alþingi í dag – „Vinnustaðasálfræðingur, frú forseti, hefur verið fenginn af minna tilefni“

Sigmundur uppskar mikinn hlátur á Alþingi í dag – „Vinnustaðasálfræðingur, frú forseti, hefur verið fenginn af minna tilefni“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ráðherra les móðgaðri stjórnarandstöðu pistilinn – „Ykkar eina erindi hér á þessu þingi er sérhagsmunagæsla“

Ráðherra les móðgaðri stjórnarandstöðu pistilinn – „Ykkar eina erindi hér á þessu þingi er sérhagsmunagæsla“