fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Eyjan

Ákært í Al-Thani máli

Egill Helgason
Miðvikudaginn 22. febrúar 2012 20:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru viss tímamót þegar sérstakur saksóknari birtir ákæru í jafn viðamiklu máli og hinum meintu fjársvikum stjórnenda Kaupþings. Það er hægt að lesa ákæruna á vef Ríkisútvarpsins – það er mjög athyglisvert hvernig fjármunum er beint úr bankanum til skúffufyrirtækja í útlöndum og þeir svo notaðir til að kaupa aftur hlutabréf í bankanum, þá í nafni einhvers Al Thanis frá Quatar.

Í frétt Sjónvarpsins um málið var það sett í samhengi við starfsemi bankans síðustu misserin. Þar kemur fram að að þá hafi Kaupþing sjálft staðið fyrir miklum meirihluta viðskipta með bréf í bankanum. Ef þau eru felld burt, segir í fréttinni, hefði rétt gengi bankans átt að vera 7 undir hið síðasta en ekki 700.

Sveinn Valfells, hagfræðingur og eðlisfræðingur, sem hefur nokkrum sinnum verið gestur í Silfri Egils, skrifaði í gær grein í Fréttablaðið þar sem hann fjallaði um kaup banka á hlutabréfum í sjálfum sér. Niðurlag greinarinnar er svohljóðandi:

„Fyrir utan hugsanleg lagabrot standast lán banka til kaupa á eigin bréfum engin rök. Banki getur ekki lánað með veði í kröfu á sig sjálfan.

Það er ekki hægt, bankinn getur aldrei innheimt sjálfan sig.

Forgangskrafa banka (lán) til kaupa á víkjandi kröfu í sjálfum sér (hlutabréf) án eðlilegra veða í ótengdum eignum stenst engin lögmál bókhalds, viðskipta- eða hagfræði. Hún er jafn fáránleg og ávísun á kanínu í tómum hatti.“

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Er Trump búinn að tapa sér endanlega? – Stórfurðuleg færsla hans um aftöku Biden

Er Trump búinn að tapa sér endanlega? – Stórfurðuleg færsla hans um aftöku Biden
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Prússneskur agi

Björn Jón skrifar: Prússneskur agi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Össur leggur til nýtt formannsefni fyrir Sósíalistaflokkinn í öldurótinu

Össur leggur til nýtt formannsefni fyrir Sósíalistaflokkinn í öldurótinu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Fyrrverandi þingmaður gengur af göflunum – nýr þingmaður gengur fram af fólki

Svarthöfði skrifar: Fyrrverandi þingmaður gengur af göflunum – nýr þingmaður gengur fram af fólki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ráðherra les móðgaðri stjórnarandstöðu pistilinn – „Ykkar eina erindi hér á þessu þingi er sérhagsmunagæsla“

Ráðherra les móðgaðri stjórnarandstöðu pistilinn – „Ykkar eina erindi hér á þessu þingi er sérhagsmunagæsla“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Geðstirður karl hættir í vinnunni

Geðstirður karl hættir í vinnunni