fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Eyjan

Ísland og Írland – samanburður

Egill Helgason
Þriðjudaginn 21. febrúar 2012 20:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Richard Barley skrifar í Wall Street Journal og veltir upp þeirri spurningu hvort landið hafi komið betur út úr kreppunni, Írland eða Ísland.

Hann segir að margir myndu segja Ísland, til skamms tíma litið.

Lánshæfismat Íslands var hækkað hjá Fitch á föstudag meðan Írland er enn í ruslflokki.

Hagkerfi beggja landanna féllu vegna þess að bankakerfið óx þeim yfir höfuð. Barley segir að það hafi að sumu leyti verið gæfa Íslands að bankakerfið varð tíu sinnum stærra en þjóðarframleiðslan, það þýddi að ekki nokkur leið var til að bjarga því. Á Írlandi var bankakerfið smærra, og þess vegna var ráðist í dýrar björgunaraðgerðir.

Harvey segir að kostnaðurinn við að endurfjármagna bankana hafi verið svipaður í báðum löndunum, 45 af þjóðarframleiðslu á Íslandi og 40 prósent af þjóðarframleiðslu á Írlandi. Í báðum löndum hafi þjóðarframleiðslan dregist saman um 12-13 prósent.

Skuldir ríkjanna séu svipaðar, þó aðeins lægri á Íslandi.

Það sem geri gæfumuninn nú sé að það sé 3 prósenta hagvöxtur á Íslandi, en 1 prósent á Írlandi.

Þetta kunni hins vegar að vera breytingum undirorpið. Íslendingar séu enn með gjaldeyrishöft sem hamli fjárfestingum. Það séu miklar efasemdir um vaxtarmöguleika á Íslandi. Írland sé líklegra til að laða til sín fjárfestingu og þar skipti evruaðildin sköpum. Í fyrra hafi meira að segja orðið 30 prósenta auking á fyrirtækjum sem voru að fjárfesta á Írlandi í fyrsta skipti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Er Trump búinn að tapa sér endanlega? – Stórfurðuleg færsla hans um aftöku Biden

Er Trump búinn að tapa sér endanlega? – Stórfurðuleg færsla hans um aftöku Biden
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Prússneskur agi

Björn Jón skrifar: Prússneskur agi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Össur leggur til nýtt formannsefni fyrir Sósíalistaflokkinn í öldurótinu

Össur leggur til nýtt formannsefni fyrir Sósíalistaflokkinn í öldurótinu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Fyrrverandi þingmaður gengur af göflunum – nýr þingmaður gengur fram af fólki

Svarthöfði skrifar: Fyrrverandi þingmaður gengur af göflunum – nýr þingmaður gengur fram af fólki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ráðherra les móðgaðri stjórnarandstöðu pistilinn – „Ykkar eina erindi hér á þessu þingi er sérhagsmunagæsla“

Ráðherra les móðgaðri stjórnarandstöðu pistilinn – „Ykkar eina erindi hér á þessu þingi er sérhagsmunagæsla“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Geðstirður karl hættir í vinnunni

Geðstirður karl hættir í vinnunni