Því miður virðist enginn hafa betri ráð við vanda Grikkja en að halda áfram að búa til efnahagsáætlanir fyrir þá sem ríkistjórnin hefur svo ekki styrk til að fylgja eftir.
Það er stöðugt verið að færa niður meira skuldum Grikkja en það dugir ekki sökum þess að efnahagsvandinn heldur áfram að ágerast.
Lögreglumenn hóta að handtaka útsendara Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Evrópusambandsins, en allar líkur eru á að þeir fengju ekki greidd laun ef ekki væru þessar alþjóðastofnanir.
Hugsanlega blasir við Grikklandi að þurfa að kveðja evruna. Afleiðingin verður ennþá meiri upplausn, kaupmáttur í landinu mun líklega hrapa um 50-70 prósent – innistæður í bönkum brenna upp. Fréttirnar frá landinu verða þannig að ferðamannaiðnaðurinn mun bíða mikinn skaða. Hann er þegar í vandræðum.
Það er alveg sama á hverju gengur, Grikkir fást ekki til að borga skattana sína. Í árferði eins og er núna er það algjör nauðsyn – en þá vantar kannski hvatann. Viðhorfið er allir stjórnmálamenn með tölu séu spilltir aumingjar – og að önnur lönd og ríkjasambönd sitji á svikráðum við grísku þjóðina.
Fáar þjóðir eru flinkari í að kenna öðrum um ófarir sínar en Grikkir.
Mikið af fé hefur reyndar verið flutt úr landinu. Það er reyndar ekki nýtt – auðugir Grikkir hafa aldrei verið sérlega þjóðhollir að þessu leyti. Peningarnir streyma til London sem er hæli fyrir óhreint fé frá öllum heiminum. Í sumum hverfum verður jafnvel vart við hækkun á íbúðaverði vegna þessa. Grísku auðmennirnir óttast að lokast inni í landinu með peninga sína ef Grikkland færi skyndilega úr evrunni.
En þeim óar líka við að vera krafðir um skatt af sundlaugum sínum, snekkjum og lúxuslífi.
Þannig vinnur alþjóða fjármagnskerfið gegn smælingjum eins og Grikkjum – fyrst þegar vart varð við vandræði þeirra köstuðu vogunarsjóðir og aðrir hrægammar sér á bráðina og þegar allt er komið í óefni eru til breiðir vegir fyrir fjármagnið út úr landinu.
Annað gildir um gríska alþýðu sem þarf að súpa seyðið af langvarandi spillingu og óstjórn – þarf að horfast á við launakækkanir, atvinnuleysi, skerðingu eftirlauna og glatað stolt.