Að sumu leyti hefur Spaugstofan verið vanmetið fyrirbæri í íslensku þjóðlífi.
Spaugstofumenn eru til dæmis aldrei tilnefndir til Edduverðlauna.
Ég veit ekki hvort þeir eru að kveðja sjónvarpið, það kemur í ljós, en þáttur þeirra í kvöld var öldungis frábær.
Það er makalaust að fylgjast með framleiðslu þessara þátta – því sem kallast production value – þeir eru gerðir á fáum dögum fyrir afar lítið fé, en samt er umgjörðin svona flott eins og mátti sjá í kvöld, leikmynd, búningar, gervi. Ég held ekki að margir gætu leikið það eftir, það þarf allavega mikla æfingu.
Spaugstofumenn, Björn Emilsson upptökustjóri og aðrir sem vinna við þættina eiga heiður skilinn.