fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Eyjan

Lögmenn og kærueysi

Egill Helgason
Fimmtudaginn 6. ágúst 2009 12:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ari Matthíasson skrifar:

— — —

Lögmenn hafa á heimasíðu félags síns, þess hins sama og ályktaði með svo smekklegum hætti um „hið svokallaða bankahrun“ , siðareglur, codex ethitcus.  Fyrsta greinin, sem fjallar um góða lögmannshætti almennt hljóðar svo:

Lögmanni ber að efla rétt og hrinda órétti. Skal lögmaður svo til allra mála leggja, sem hann veit sannast eftir lögum og sinni samvisku.

Nú veit ég ekki hvernig lögmenn skilja þennan texta. Ég hef nokkrum sinnum lýst eftir því að lögmenn, endurskoðendur og bankamenn myndu leggja almenningi lið í nauðum við að upplýsa um bankahrunið og þau auðgunarbrot sem virðast hafa verið framin. Samt læðist að manni sá grunur að enginn vilji sé á þeim bæjum.

Tökum lítið dæmi.

Í nýbirtum tölvupósti frá meintum fjárglæframanni til lögmanns síns kemur fram að hann hafi selt sjálfum sér fasteign út úr fyrirtæki sem var á leið í þrot. Þessa fasteign ætlar hann að tvíselja, væntanlega sjálfum sér, en það er þó ekki alveg víst, og auðgast þannig um 3 milljarða. Lögmanninum er á þessum tímapunkti ljóst að annað hvort hefur fasteignin verið seld út úr hinu aðframkomna fyrirtæki á allt of lágu verði (annars myndi ekki vera hægt að skuldsetja hana svona stórkostlega) eða að ætlunin sé að blekkja lánastofnanir til þess að lána langt umfram veðhæfni og því væru hér á ferðinni sýndarviðskipti af því tagi sem nú eru vinsælust meðal nútíma bankaræningja. Í tölvupóstinum kemur einnig fram að verulegar þóknanir munu renna til þeirra sem annast lánveitingar, söluna og pappírsgerð. Eftir miklu er því að slægjast. Í þessu sambandi er auðvitað rétt að minna á að áður en bankarnir fóru á hausinn þá var lánað allt að 80% af kaupverði fasteignar að undangengnu ítarlegu greiðpslumati. Þetta gildir þó auðvitað ekki fyrir stóra hluthafa banka.

En þessi tölvupóstur barst sem sagt til fjölmiðla og einn var svo ósvífinn að birta hann og þá um leið hófust hróp og köll um falsanir, fjárkúgun og fullan blaðamann, en þó án þess að sannleiksgildi tölvupóstsins hafi verið hrakið svo ég viti a.m.k. Reyndar hefur hinn meinti fjárglæframaður fullyrt að kaup sín á bústaðnum hafi verið á eðlilegu verði út úr fyrirtækinu sem þraut erindi. Við skulum þá taka hann trúanlegan í því.  Ef svo er þá ætlar fjárplógsmaðurinn sér í vitorði með lögmanninum að setja í gang tvíþrepa sýndarviðskipti sem munu skila 3 milljörðum í laust fé handa einum og rúmlega hálfan milljarð í þóknanir handa öðrum fyrir „kostnað við sölu og annað“.

Gaman væri að fá skoðun lögmannafélagsins á þessu.

Gaman væri einnig að fá skoðun hins sérskipaða saksóknara á þessu eða hvort „kæruleysi“ eigi enn að vera hlutskipti stóru gerendanna í „hinu svokallaða bankahruni“.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Að lifa í skugga sjaldgæfs sjúkdóms

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Að lifa í skugga sjaldgæfs sjúkdóms
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Lottópeningarnir skipta sköpum

Willum Þór Þórsson: Lottópeningarnir skipta sköpum
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Mesti heiður sem mér hefur hlotnast er að verða heiðursfélagi í Val

Grímur Sæmundsen: Mesti heiður sem mér hefur hlotnast er að verða heiðursfélagi í Val
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna