
Bloggarinn Soffía Sigurðardóttir stingur upp á nafni fyrir þann tíma í Íslandssögunni sem við erum að lifa.
„Mæðuharðindin.“
Það er bara nokkuð gott.
Hvenær fóru Móðuharðindin annars að kallast „Móðuharðindin“?
Ég veit það var móða yfir landinu.
Voru menn kannski búnir að prófa einhver önnur nöfn fyrst og fundu að þau pössuðu ekki alveg?
Frægur harðindavetur á Íslandi kallaðist Lurkur.
Ég man að Gísli í Uppsölum notaði þetta orð þegar hann talaði um erfiða tíma:
„Það var Lurkur,“ sagði hann.