
Ímynd Íslands verður byggð upp aftur með því að við tökum til í okkar ranni.
Segjum satt og rétt frá því sem hérna gerðist.
Byggjum upp heilbrigt samfélag á rústunum, með opnu og gegnsæju stjórnkerfi og skynsamlegri nýtingu auðlinda.
Ekki með spuna úr pr-körlum. Við þurfum ekki nýja lygi í staðinn fyrir gömlu lygina.
Annar þeirra talar um fjölmiðlaveislu í útlöndum sem snúist um að hafa æruna af Íslendingum.
Er það?
Eru erlendir fjölmiðlar ekki bara að segja frá því sem hér gerðist?
Við skulum líka gera okkur grein fyrir því að flestar þjóðir eru okkur vinveittar sem fyrr. En þær hlaupa kannski ekki upp til handa og fóta til að þrífa eftir það sem fjármálaráðherra Noregs nefndi „frjálshyggjutilraun“.
En auðvitað mun ekki gleymast næstu kynslóðir að Ísland var landið sem hrundi í kreppunni 2008.
Við sitjum uppi með það.