
Því var haldið fram á Íslandi eftir hrun að landið yrði fyrst inn í kreppuna og fyrst út úr henni.
Þessu sama var haldið fram í Bretlandi, að það yrði framarlega inn í kreppu og kæmist fljótt út.
Fjármálakerfið þar væri svo sveigjanlegt.
Hagtölur bera þessu ekki vitni. Í Bretlandi valda samdráttur í ofvöxnu fjármálakerfi og sprungin húsnæðisbóla því að erfiðleikarnir dragast á langinn.
Um Ísland þarf ekki að fjölyrða. Hér er allt í kalda koli eftir áralanga óstjórn í efnahagsmálum.
Nú berast fréttir um að vöxtur mælist aftur í hagkerfum Þýskalands og Frakklands í fyrsta skipti síðan á fyrsta hluta síðasta árs – sem þýðir, samkvæmt BBC, að samdráttarskeiðinu er lokið í þessum helstu efnahagsveldum á meginlandi Evrópu.