
Á frönsku er sagt plus ça change, plus c’est la même chose.
Það breytist en er samt eins.
Þetta á ágætlega við um kosningu í bankaráð Seðlabankans.
Þar er passað upp á að kjósa gamla flokkshesta.
Og svo er búið að kjósa í Þingvallanefnd – sem þykir ein helsta silkihúfunefndin.
Starf fyrri nefndar fólst aðallega í því að koma í veg fyrir að fólk gæti fengið að borða á Þingvöllum og helst má það ekki heldur pissa eða kúka – það hangir auðvitað allt saman.
Spurning hvort verði breyting þar á?