
Nóbelsverðlaunahafinn Paul Krugman skrifar og segir að stórri heimskreppu hafi verið afstýrt. Og að það séu afskipti ríkisvaldsins sem hafi bjargað kerfinu – ólíkt því sem var í kreppunni miklu.
Ástandið sé ennþá slæmt, en heimurinn hafi ekki fallið ofan í hyldýpið.
Hann segir að Ronald Reagan hafi haft rangt fyrir sér.
Stundum sé einkageirinn vandamálið, en ríkið lausnin. Það sé líka léttir að nú séu bandaríska ríkið í höndum manna sem hata ekki ríkisvald.