
Sumir fríka ábyggilega út yfir grein Anne Sibert – sem raunar er að miklu leyti akademísk vangavelta.
Það má samt ekki gleyma því að það voru Siebert og eiginmaður hennar, Willem Buiter, sem vöruðu sterklega við hruni íslenska hagkerfisins strax snemma árs 2008. Þá var skýrslu frá þeim stungið undir stól af sömu tegund embættis- og stjórnmálamanna og Siebert lýsir í grein sinni.
Við höfum lengi búið við það Íslendingar að stjórnmála- og embættismenn okkar koma flestir úr sama menntaskólanum og sömu lagadeildinni í HÍ; fæstir þeirra hafa einu sinni komið til útlanda enda myndu þeir þá eiga á hættu að detta úr goggunarröðinni í pólitíkinni.
Þessi heimalningsháttur hefur löngum verið einkenni á stjórnmálunum hér; það mætti jafnvel tala um úrkynjun í því sambandi.