
Það væri sómi að því fyrir Eið Smára að halda sínum glæsilega ferli áfram hjá stóru, merku og fornfrægu félagi eins og Bayern München.
Ljóst að það bíða hans ekki mikil tækifæri meðal snillinganna hjá Barcelona. Stundum er eins og þeir séu vart af þessum heimi.
Ég hafði haldið að hann myndi kannski klára ferilinn hjá liði um miðja ensku deildina – Tottenham, West Ham, Everton – eða einhverjum slíkum klúbbi.
En Bayern er miklu flottara.