
Á Íslandi hrynjur fjármálakerfið og kjósendur kjósa til vinstri, móti þeim sem hafa verið við völd – hægrimönnunum.
Í Bretlandi er þessu öfugt farið. Þar hafa vinstrimenn verið við völd, kerfið er við hrunmörk, og kjósendur ætla að kjósa þá sem hafa ekki verið við völd.
Hægrimennina.
Dálkahöfundurinn snjalli, Nick Cohen, bendir á að þetta séu fyrrum nemendur í mesta elítuskóla í heimi, Eton.
Í marga áratugi hefur verið algjör bannhelgi á því að breskir forsætisráðherrar komi úr Eton. Sá síðasti sem gekk í þann skóla var Alec-Douglas Home. Skammlíf ríkisstjórn hans árin 1963 til 1964 var full af Eton mönnum. Á undan honum var Harold Macmillan forsætisráðherra, hann nam líka í Eton.
Margaret Thatcher var hins vegar dóttir smákaupmanns og John Major var sonur sirkuslistamanns. Það er sagt að hann sé eina dæmið um mann sem strauk úr sirkus til að fara í pólitík.
David Cameron er yfirstéttarmaður sem gekk í Eton og í kringum hann eru fyrrum skólapiltar úr þessari menntastofnun.
Eftir tólf ár undir New Labor eru Bretar svo langt leiddir að þeir eru til í að kjósa yfir sig gömlu aristókratíuna.
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=ocMUBZ8elDs]