Mikið er nú deilt á þingi um álit lögmannsstofunnar Mishcon de Reya á Icesave.
Lögfræðingar furða sig á því að þessi stofa hafi yfirleitt komið nálægt málinu. Einn lögmaður orðaði það svo að þetta sýni hvílíkt klúður málið er frá upphafi.
Samkvæmt flokkun lögmannsstofa, svoköluðu Legal 500, nýtur Mishcon de Reya ekki mikils álits. Bestu stofurnar fá einkunnina tier 1, en svo er hægt að fá allt niður í tier 6.
Einkunnagjöfin er reyndar misjöfn eftir því um hvaða málaflokka er að ræða
Mishcon de Reya nær ekki tier 1 á neinu sviði. Á sviði fjármálaþjónustu er stofan með tier 5.
Þeir sem vilja láta taka sig alvarlega þegar þeir setjast að samnngaborði í Bretlandi nota þessar lögfræðistofur sem eru kenndar við magic circle, töfrahringinn. Breska ríkið notar mikið Slaughter & May, en islenska ríkið hefur notað Allen & Overy og Lovell’s sem stendur rétt utan hringsins, en í þessu tilviki er af einhverjum ástæðum fengin minniháttar lögfræðistofa til verksins.
Hví skyldi það vera?
Hvers vegna er ekki leitað til bestu sérfræðinga þegar svo mikið er í húfi?