fbpx
Föstudagur 19.desember 2025
Eyjan

Hrunadans kerfisins

Egill Helgason
Laugardaginn 19. desember 2009 18:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Baldur Guðlaugsson skrifar grein í Morgunblaðið í dag, sjálfum sér til varnar. Að mati ritstjórnar blaðsins er hann af því kalíberi að hann fær birtar greinar á leiðaraopnunni.

Í greininni er merkileg málsgrein, og nokkuð afhjúpandi.

Hún fjallar um setu Baldurs, þáverandi ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneytisins, í samráðshópi ráðuneyta, Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans. Þessi nefnd fundaði 31. júlí 2008. Orð Baldurs sýna í hvílík vandræði stofnanir sem áttu að hafa eftirlit með íslenska fjármálakerfinu voru komnar:

Í fundargerð þessa fundar samráðshópsins kemur fram að ég hafi sagt að ég teldi að það gæti orðið banabiti fyrir bankana ef umræðan færi af stað um veikleika Tryggingasjóðsins. Þar var ég að sjálfsögðu að vísa til þeirrar opinberu umfjöllunar sem átt hafði sér stað í Bretlandi nokkru áður og hafði þá leitt til nokkurs útflæðis af innlánsreikningum Landsbankans. Var augljóst að það hefði getað valdið áhlaupi breskra innstæðueigenda ef endurnýjuð og aukin umræða hefði farið af stað um að mikill vafi léki á því að hægt yrði að standa undir innstæðutryggingunum.”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Karl Ágúst Úlfsson: Aldurinn farinn að segja til sín – eins gott að þú ert að hætta

Karl Ágúst Úlfsson: Aldurinn farinn að segja til sín – eins gott að þú ert að hætta
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Litli hluthafinn rýfur málhvíldina

Þorsteinn Pálsson skrifar: Litli hluthafinn rýfur málhvíldina