fbpx
Föstudagur 22.ágúst 2025
Eyjan

Af Björgólfsmálum hinum síðari

Egill Helgason
Föstudaginn 18. desember 2009 10:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Elías Pétursson sendir þessa grein:

Svolítið merkilegt þetta mál með Björgólf, gagnaverið og iðnaðarráðherrann

  • Björgólfur kom fyrir nokkrum árum og sagði öllum að hann ætti ógeðslega mikið af útlenskum peningum fékk þess vegna að kaupa banka…
  • Seinna kom í ljós að það var allavega að einhverju leyti lygi því hann hafði fengið lánað fyrir amk. hluta hjá svikabræðrum sínum sem þá voru líka að fá banka.
  • Það kom líka í ljós að hann hafði aldrei borgað lánið sem hann fékk hjá kollegunum, enda of mikið að gera við að taka ný lán til þess að geta tekið önnur lán til að borga lán.
  • Og þegar ekki fengust meiri lán hjá stórum strákum þá fór hann og lofaði ofsagóðri ávöxtun á sparifé útlendinga, og sagði okkur að allt væri frábært.
  • Frá því ca  2007 lugu Björgólfur snillingur og starfsmenn hans linnulaust um stöðu bankans sem hann fékk lánað fyrir, (okkur var líka sagt af stjórnmálamönnum að hann hefði sko bara borgað bankann með útlenskum peningum og allt væri jollý)
  • Fyrir örfáum árum kom Björgólfur og sagðist vera að græja Actavis með ógeðslega miklum útlenskum peningum allt staðgreitt og bjart framundan….
  • Fyrir stuttu kom í ljós að ógeðslega miklu útlensku peningarnir voru fengnir að láni eins og allt annað í hans viðskiptum.
  • Reyndar hafði honum tekist að fela það svo vel að Seðlabankinn fann ekki ca 1.000.000.000.000,- skuldina fyrr en nú um daginn.
  • Nú er Björgólfur að koma með hrikalega góða „fjarfesta“ með að sjálfsögðu ógeðslega mikið af útlenskum peningum…og hann segist bara eiga 40%
  • Og þá finnst iðnaðarráðherranum það „hálfógeðfellt“ hvernig þingmaður og fyrirspyrjandi tali um siðferðisleg mörk
  • Iðnaðarráðherranum finnst það „ógeðfellt hvernig þingmenn reyna að gera þetta mál tortryggilegt.
  • Og segir reyndar að lokum „Ég spyr mig um annarlegar hvatir þegar menn koma með svona málflutning hingað inn.

Getur verið að eitthvað vanti í okkur Íslendinga?

Eða höfum við bara alls engin prinsipp??

Reyndar er eitt í þessu öllu sem er sérstakt umhugsunarefni, Björgólfi virðist ganga hvað best í viðskiptum/fjárfestingum í gömlum austantjaldsríkjum.

Taktu eftir því Egill að hvergi í öllum þessum texta skrifa ég orðið “ICESAVE“, sennilega ætti tjón okkar vegna þess að vera þarna betur skilgreint…

En allt hitt ætti að vera nóg til þess að við segðum þessum manni að fara og gera bissnes einhversstaðar annarsstaðar t.d. í Austurevrópu…þeir kunna kannski að höndla svona snilling.

ICESAVE eitt og sér ætti aftur á móti að vera forsenda fangelsisdóms og ævilangs missis íslensks vegabréfs.

Hér eru samræður Iðnaðarráðherrans og þingmannsins…

http://www.althingi.is/altext/hlusta.php?raeda=rad20091217T105000

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir að ESB-aðild sé engin ógn við sjávarútveginn

Segir að ESB-aðild sé engin ógn við sjávarútveginn
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Nína Richter skrifar: Miðaldra konur í hörtóga á Balí

Nína Richter skrifar: Miðaldra konur í hörtóga á Balí
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Trump leitar í smiðju höfundar hrunsins

Orðið á götunni: Trump leitar í smiðju höfundar hrunsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Öfugmælavísa ritstjórans – niðurlæging stjórnarandstöðunnar tekur engan endi

Svarthöfði skrifar: Öfugmælavísa ritstjórans – niðurlæging stjórnarandstöðunnar tekur engan endi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“
Eyjan
Fyrir 1 viku

ESB-aðild: Rangfærslur og blekkingar fyrrum þingmanns – við hvað eru menn hræddir?

ESB-aðild: Rangfærslur og blekkingar fyrrum þingmanns – við hvað eru menn hræddir?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Til varnar „mömmuklámi“

Nína Richter skrifar: Til varnar „mömmuklámi“