
Einhvern veginn er maður farinn að fá á tilfinninguna að stjórnvöld hér hafi ekki áhuga á að farið verði í mál við Breta vegna aðgerða þeirra gegn íslensku bönkunum.
Að þau óttist kannski að í slíkum málaferlum komi fram upplýsingar sem gætu verið neyðarlegar fyrir íslensku bankana og Ísland?
Til dæmis um vafasama fjármagnsflutninga.
Og að hætta kunni að vera á því að málið tapist vegna þessa.
Eða hvað veit ríkisstjórnin – og hvað veit Davíð?
Hví er svona lítill áhugi á þessari málsókn?