fbpx
Miðvikudagur 04.mars 2026
Eyjan

Íslandsvinur í ham á Fox News

Egill Helgason
Mánudaginn 17. ágúst 2009 10:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

David Cameron, formaður Íhaldsflokksins, hefur sett ofan í við Íslandsvininn Daniel Hannan og segir að skoðanir hans á breska heilbrigðiskerfinu séu einkennilegar.

Hannan, sem er Evrópuþingmaður, fyrir Íhaldsflokkinn, hefur komið fram á Fox News í Bandaríkjunum og sagt hryllingssögur af breska heilbrigðiskerfinu, NHS. Hann telur kerfið vera argasta sósíalisma og vill að það verði lagt niður.

Þannig leggur Hannan lóð á vogarskálar bandarískra repúblikana sem berjast nú eins og óðir gegn hugmyndum Obamas forseta um almennar heilbrigðistryggingar. Hannan varar Bandaríkjamenn við að taka þær upp.

En NHS er Bretum mjög kært og enginn stóru flokkanna í Bretlandi vill hrófla við því. Cameron sjálfur segir að þetta sé merkasta stofnun í landinu.

Hannan hefur nokkrum sinnum komið til Íslands og lagt sitt af mörkum í umræðum um landið. Til skamms tíma leit hann á það sem einhvers konar thatcheríska frjálshyggjuparadís og talaði mikið um íslenska efnahagsundrið.

Hann mun hafa komið til álita sem ræðumaður á útifundi til að mótmæla Icesave, en frá því var horfið.

Hér er frétt Guardian um Hannan og Cameron.

Og hér má sjá Hannan á Fox News.

[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=Hgt763qTrBo]

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Að lifa í skugga sjaldgæfs sjúkdóms

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Að lifa í skugga sjaldgæfs sjúkdóms
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Lottópeningarnir skipta sköpum

Willum Þór Þórsson: Lottópeningarnir skipta sköpum
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Mesti heiður sem mér hefur hlotnast er að verða heiðursfélagi í Val

Grímur Sæmundsen: Mesti heiður sem mér hefur hlotnast er að verða heiðursfélagi í Val
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna