
Samkvæmt fréttum nú í morgun virðist Icesave málið loks vera að klárast.
Allir flokkar ætla að sameinast um afgreiðslu þess – með fyrirvörum – nema Framsóknarflokkurinn.
Nú er spurningin hvernig Bretar og Hollendingar bregðast við. Samþykkja þeir fyrirvarana, eða líta þeir á þá sem jafngildi þess að íslenska þingið hafni samningnum.
Þannig það er ekki víst að Icesavemálinu sé að ljúka. Alls ekki.
En þetta er búið að taka allt of langan tíma.
Guðbjörn, söngvari og tollvörður, hefur rétt fyrir sér þegar hann segir að nú þurfi menn að einhenda sér í kraftmikla uppbyggingu. Með brjóstið fullt af vonum heitir greinin hans.
Íslendingar hafa fullt af tækifærum í landbúnaði, ræktun, fiskeldi, jarðhita, raforkuorku, listum – við þurfum bara að látum kerfishugsunina, sérhagsmunina og þröngsýnina sem alltof mikið hefur einkennt atvinnulífið hér lönd og leið.
Og passa okkur á græðginni og þeim sem vilja eignast allt. Við höfum vonda reynslu af því liði.