fbpx
Miðvikudagur 04.mars 2026
Eyjan

Góðir dagar á Norðurlandi

Egill Helgason
Miðvikudaginn 12. ágúst 2009 00:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við höfum átt frábæra daga norðanlands síðsumars. Fórum á fiskidaga í Dalvík; vorum þar súpukvöldið og svo daginn eftir þegar hin eiginlega fiskihátíð var haldin.

Á Mývatni komum við í Höfða og Dimmuborgir, kjössuðum kálfana í Vogafjósinu sem er með samtengdan veitingastað með útsýni yfir vatnið.

Fórum í Jarðböðin – sem eru algjör snilld, miklu skemmtilgri en Bláa lónið.

Elvar, saltfiskverkandi og snillingur á Hauganesi, tók á móti okkur – hann framleiðir besta saltfisk landsins. Setti svo Kára upp á hest.

Í gilinu fyrir ofan Dalvík tíndum við aðalbláber; þau eru langbest beint af lynginu.

Svo áttum við kvöld á Friðrik V á Akureyri  þar sem maður fæ mat úr eyfirsku hráefni. Þetta er líklega  besti veitingastaður á landinu og ekki sakar að veitingamaðurinn nýtur þess að ræða við gestina. Þannig verður úr mikið gestaboð – þar sem börn eru líka velkomin.

Á sumum veitingastöðum á Íslandi verður fólk á svipinn eins og það ætli að hringja á lögregluna þegar börn birtast.

Maður getur ekki verið svartsýnn eftir svona ferð. Við höfum hitt duglegt, kraftmikið og hugmyndaríkt fólk – sem er ekkert að kvarta yfir ástandinu.

Kannski er dálítið til í því sem einn vinur okkur á Dalvík sagði – nefnilega að góðærið mikla hefði ekki alveg náð þangað og kannski ekki heldur kreppan. Bankarnir voru yfirleitt ekki til í að lána fé út á hús fólks sem býr í plássunum í kringum landið. Og fyrir vikið gat það ekki sökkt sér í skuldadíki eins og margir í höfuðborginni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Að lifa í skugga sjaldgæfs sjúkdóms

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Að lifa í skugga sjaldgæfs sjúkdóms
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Lottópeningarnir skipta sköpum

Willum Þór Þórsson: Lottópeningarnir skipta sköpum
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Mesti heiður sem mér hefur hlotnast er að verða heiðursfélagi í Val

Grímur Sæmundsen: Mesti heiður sem mér hefur hlotnast er að verða heiðursfélagi í Val
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna