
Sá mikli flugáhugamaður Ómar Ragnarsson tjáir sig um málefni Icelandair á bloggi sínu:
„Ég hef heimildir fyrir því sem hafa gengið fjöllunum hærra að í upphafi hafi Sigurður Helgason ásamt öðrum fengið því framgengt að tíu milljarðar yrðu lagðir til hliðar sem varasjóður sem aðeins mætti snerta í neyð.
Í fyllingu tímans rak síðan einhver augun í það að þessir peningar voru horfnir. Í ljós kom, eftir því sem mér hefur verið sagt, að Hannes hafði tekið þetta fé traustataki án þess að spyrja neinn og notað til að kaupa Sterling flugfélagið sem hann setti síðan á hausinn.
Sigurður og fleiri hafi þá sagt sig úr stjórninni, en á þeim tíma var aldrei gefið upp af hverju.
Ég tel að þessi mál þurfi að hreinsa og að Sigurður eigi að gangast fyrir því að gera það. Allt upp á borðið.
Það er kominn tími til að upplýsa allt um ástæður þess að hann og aðrir gengu úr stjórninni að mínu mati.
Það þarf að sjá til þess að aftur verði tekinn upp eðlilegur og siðlegur rekstur í stað þeirrar sápukúlu blekkinga og sjónhverfinga sem Hannes Smárason og félagar hans blésu upp og sprakk síðan framan í okkur öll.“