
Vefurinn Amx heldur því fram að norrænt samstarf hafi brostið vegna Icesave.
Hinn kaldi veruleiki er að Svíþjóð, Danmörk og Finnland eru í ESB; Evrópusambandið skiptir þessi lönd höfuðmáli, ekki hinn huggulegi kaffiklúbbur sem kallast Norðurlandaráð.
Svíþjóð er í þröngri stöðu efnahagslega og gegnir að auki forystu í ESB þessa mánuðina. Finnar eru langt í burtu og hafa alltaf verið mjög hollir Brusselvaldinu. Dönum stendur mestanpart á sama, nema hvað þeir muna eftir hrokafullum íslenskum útrásarvíkingum sem keyptu upp eignir í Kaupmannahöfn og létu eins og þeir vissu allt betur.
Norðmenn sem eru með okkur í EES og teljast líklega okkar nánasta frændþjóð hafa ákveðið að standa með Svíum, Dönum og Finnum.
Þetta er hin pólitíska staða – og jú, það má segja að norrænt samstarf sé ekki margra fiska virði í þessu sambandi.