
Hlutafélagið Gift var stofnað utan um eignir Samvinnutrygginga. Sagt var frá því sumarið 2007 að félagið ætti um það bil 30 milljarða sem yrði deilt milli þeirra sem tryggðu hjá Samvinutryggingum.
Rúmu ári síðar var tilkynnt að Gift ætti enga peninga lengur, heldur skuldaði félagið 30 milljarða umfram eignir.
Gift er eitt af félögunum sem kemur fyrir glærusýningu Kaupþings.
Þar kemur fram að Gift skuldaði bankanum 30 milljarða gegn veði í eignum félagsins.
Veðin voru að mestu leyti hlutabréf í Kaupþingi.
Gift, félag sem í rauninni enginn á, fær semsagt risalán til að kaupa í Kaupþingi gegn veðum í Kaupþingsbréfum.
Gunnar Axel var með ágæta samantekt á Gift, S-hópnum og framsóknarmönnum í bisness í nóvember síðastliðnum.
Svo má nefna að á danskri tungu þýðir gift eitur.
Ljóst er að þarna er á ferðinni bíræfin aðferð klíkubræðra til að halda uppi verði hlutabréfa í bankanum.
Önnur aðferð voru kúlulánin sem voru veitt stjórnendum, starfsmönnum og vildarvinum. Lára Hanna fjallar um þau hér.