fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Eyjan

Kúlúlán frá Kaupþingi til að kaupa Bónus/Hagkaup út úr Baugi

Egill Helgason
Laugardaginn 1. ágúst 2009 14:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margt kemur fram í hinu stórmerka lánayfirliti Kaupþings sem Jónas Kristjánsson kallar mesta skúbb aldarinnar.

Þar má meðal annars lesa að fyrirtæki tengd Jóni Ásgeiri Jóhannessyni skulda Kaupþingi upphæðir sem nema 320 milljörðum króna.

Það var haldið að lána honum fram undir það síðasta, svo hann missti örugglega ekki tökin á versluninni á Íslandi.

Á blaðsíðu 20 í yfirlitinu má lesa um fyrirtækið 1998ehf.

Þetta fyrirtæki fékk á síðasta ári lán frá Kaupþingi upp á 263.5 milljónir evra, hátt í 50 milljarða íslenskra króna að núvirði.

Tilgangurinn var að kaupa 95.7 prósenta hlut í Högum (verslunum Baugs á Íslandi) frá Baugi Group.

Jón Ásgeir fékk semsagt lán frá vinum sínum í Kaupþingi sem hann skuldaði óheyrilegar fjárhæðir (Glitnir var sennilega sprunginn þegar þetta var) til að kaupa verslanirnar úr ofurskuldsettu félagi sínu yfir í annað félag.

Þessi lánafyrirgreiðsla kemur stuttu fyrir hrun, þegar ljóst er að stefnir í óefni á Íslandi.

Samkvæmt heimildum er þetta kúlulán með gjalddaga 2010. Það er semsagt hvorki vextir né afborganir af því fyrr en þá. Verða Jón Ásgeir og Jóhannes borgunarmenn fyrir þessu? Eða mun Kaupþing taka yfir búðirnar?

Og hversu mikið fé geta þeir mjólkað út úr rekstrinum fram að þeim tíma?

Í framhaldi af því má líka spyrja hversu mikið innheimtist af 320 milljörðunum sem fyrirtæki tengd Jóni Ásgeiri skulda.

Víða hefur lánafyrirgreiðslan verið góð fyrir hina útvöldu elítu Íslands. Lánayfirlit Kaupþings er stórmerkileg heimild um hvernig fjármálakerfi landsins var breytt í svikamyllu. Enn eigum við eftir að sjá lánabækur Landsbankans, en athyglisverð er fréttin um að Jón Ásgeir hafi fengið 24 milljón dollara lán frá Landsbankanum til að kaupa lúxusíbúð í New York – án veða!

Kaupþing fer nú fram á lögbann vegna þessara gagna. Þá er ekki annað að gera en að sem flestir hlaði þeim niður og þau birtist sem allra víðast.

Síðan er hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Lottópeningarnir skipta sköpum

Willum Þór Þórsson: Lottópeningarnir skipta sköpum
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Að loknum vetrarólympíuleikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Að loknum vetrarólympíuleikum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni