fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Eyjan

Hertar reglur um fjármálastarfsemi

Egill Helgason
Fimmtudaginn 30. júlí 2009 09:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er langt þangað til Íslendingar fara í nýtt bankaævintýri. Líklega á starfsfólki í bönkum eftir að fækka talsvert frá því sem nú er – kannski nær landið líka einhvern tíma að tengjast betur erlendum bankastofnunum? Það er óskandi.

Á forsíðu Morgunblaðsins í dag er fjallað um framtíðarregluverk fjármálakerfisins, Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra nefnir nokkur atriði sem þarf að skoða sérstaklega í því sambandi:

Lánveitingar til tengdra aðila, ekki síst eigenda fjármálafyrirtækja.

Lán sem eru veitt engöngu gegn veði í hlutabréfum.

Kaupréttir og bónusar sem geta leitt til of mikillar áhættu.

Lán í erlendri mynt til innlendra aðila sem hafa hvorki tekjur né eignir í erlendri mynt.

Í greininni bætir Steingrímur J. Sigfússon svo við nauðsyn á gegnsæi, og aðskilnaði fjárfestingarbanka frá viðskiptabönkum.

Dæmin sanna að reglurnar hér á Íslandi þurfa að vera grjóharðar og eftirfylgnin líka. Í gær kom í ljós að Landsbankinn hafði lánað Björgólfi Thor Björgólfssyni 43 milljarða króna og stjórn bankans réttlætt það með því að hann væri ekki tengdur bankanum!

Í gær birti ég líka ákvörðun Fjármálaeftirlits vegna kaupa Samsonar á Landsbankanum frá árinu 2003.  Ekki verður betur séð en að mörg atriði í sem þar komu fram hafi verið þverbrotin. Líklega var þetta plagg bara málamyndagjörningur, engum datt í hug að taka mark á því.

Í þessu landi þar sem klíkur eru allsráðandi þarf líka að beita öllum tiltækum ráðum til að koma í veg fyrir krosseignarhald. Það þarf öflugt fjármálaeftirlit, sem gefur ekki bara út álit heldur fylgir málum eftir af festu. Og sökum þess að fjármagnið er alþjóðlegt þarf að hafa alvöru samstarf við fjármálaeftirlit annarra þjóða.

Reyndar má nefna í því sambandi að innan Evrópusambandsins eru uppi tillögur um samevrópskt fjármálaeftirlit og hertar reglur um fjármálastarfsemi. Frakkar hafa verið ákafir talsmenn þessa.

Þeir sem standa hvað mest á móti eru Bretar með sinn fjármálamarkað sem hefur ýmis einkenni skattaskjóla – enda er London full af illa fengnu fé frá Rússlandi, Arabalöndum, jú, og kannski Íslandi líka.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Lottópeningarnir skipta sköpum

Willum Þór Þórsson: Lottópeningarnir skipta sköpum
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Að loknum vetrarólympíuleikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Að loknum vetrarólympíuleikum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni